Nýjasta kvikmyndin um breska njósnarann James Bond er væntanleg í kvikmyndahús í nóvember næstkomandi og af því tilefni verður sett á laggirnar ný auglýsingarherferð á Smirnoff Vodka, segir í tilkynningu frá auglýsingadeild Smirnoff.

Í kvikmyndinni, sem ber heitið Casino Royale, mun Bond endurnýja kynni sín við Vodkategundina frægu, en hann hefur dreypt á hristum Vodka-Martini drykkjum í yfir fjögurtíu ár.

Bond pantaði sinn fyrsta Vodka-Martini drykk árið 1962 í kvikmyndinni Dr. No og gjörbylti það sölu á Martini drykkjum, en fram að því var Gin notað að mestu í stað Vodka.

Auglýsingarherferðin verður gerð í samstarfi við framleiðendur myndarinnar og mun ná út um allan heim.