Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sendi starfsbræðrum sínum í Bretlandi og Hollandi bréf í síðustu viku, þar sem óskað er atbeina þeirra til að ná fram farsælli lausn í Icesave-málinu. Í bréfinu er einnig fjallað um hugsanlega fundi forsætisráðherranna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Bréfið var sent í kjölfar samþykktar Alþingis á lögum um ríkisábyrgð á láni Breta og Hollendinga til Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

Í tilkynningunni segir enn fremur að embættismenn frá Íslandi, Hollandi og Bretlandi hafi hist á óformlegum fundi í Haag í Hollandi í gær. „Tilgangur fundarins var að upplýsa og skiptast á skoðunum um nýsamþykkt lög á Alþingi um ríkisábyrgð á láni Breta og Hollendinga til Tryggingarsjóðs til þess að greiða lágmarkstryggingu til innstæðueigenda Icesave reikninga," segir í tilkynningunni.

Íslensku fulltrúarnir hafi skýrt á fundinum einstök atriði í meðferð málsins og frumvarpið sjálft.

„Góður andi ríkti á fundinum og taka fulltrúar landanna væntanlega upp þráðinn í næstu viku, í þeim tilgangi að ná fram sameiginlegum skilningi eins fljótt og auðið er," segir í tilkynningunni.