Kosið var um nýja stjórn á hluthafafundi Skeljungs sem fram fór í gær. Jens Meinhard Rasmussen var kjörinn formaður stjórnar. Jón Ásgeir Jóhannesson var kjörinn varaformaður stjórnar. Eftirtalin voru kjörin í stjórn félagsins:
- Ata Maria Bærentsen
- Birna Ósk Einarsdóttir
- Jens Meinhard Rasmussen
- Jón Ásgeir Jóhannesson
- Þórarinn Arnar Sævarsson
Nýir inn í stjórnina komu þeir Jón Ásgeir og Þórarinn Arnar. Engin önnur mál voru borin upp á fundinum svo honum var slitið að stjórnarkjöri loknu.