Jón Finnbogason, lögmaður, býður sig fram í 4. sæti í prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi sem haldið verður 8. febrúar næstkomandi.

Jón leggur áherslu á fjölgun hagkvæmra íbúða fyrir ungt fólk til að tryggja áframhaldandi búsetu þeirra í Kópavogi ásamt ábyrgri fjármálastjórn með markmið um niðurgreiðslu skulda og lækkun skatta á komandi árum.

Jón er fyrrverandi formaður Íþróttafélagsins Gerplu í Kópavogi, 2006 – 2013.