Jón Ingi Árnason, Jón Eggert Hallsson og Valdimar Ármann hafa tekið við nýjum stöðum hjá Arctica Finance, en sá fyrstnefndi tekur við forstöðu eftir ársstarf hjá félaginu og sá síðastnefndi færir sig milli deilda eftir svipað langt starf.

Jón Ingi Árnason hefur verið ráðinn til Markaða Landsbankans.
Jón Ingi Árnason hefur verið ráðinn til Markaða Landsbankans.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Jón Ingi Árnason hefur verið ráðinn forstöðumaður Markaðsviðskipta Arctica Finance. Hann tekur við starfinu af Agnari Hanssyni sem hefur verið forstöðumaður deildarinnar frá stofnun hennar fyrir 10 árum. Agnar mun áfram sinna tilfallandi verkefnum í samvinnu við Arctica Finance og verða félaginu til ráðgjafar.

Jón Ingi hefur starfað sem miðlari í Markaðsviðskiptum Arctica Finance síðan í ársbyrjun 2020. Hann hefur reynslu af störfum á fjármálamarkaði, en áður en Jón Ingi hóf störf í Markaðsviðskiptum Arctica Finance starfaði hann m.a. í markaðsviðskiptum Landsbankans, Kviku og Straums. Jón Ingi er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið löggildingu í verðbréfamiðlun.

Jón Eggert Hallsson.
Jón Eggert Hallsson.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Jón Eggert Hallsson er nýr starfsmaður Markaðsviðskipta Arctica Finance. Jón Eggert hefur áralanga reynslu af störfum á fjármálamarkaði og var um tíma forstöðumaður eignastýringar Íslenskra verðbréfa, auk þess sem hann starfaði hjá Kviku banka, Straumi fjárfestingabanka, Expectus, J Bond Partners og Íslandsbanka.

Jón Eggert er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið löggildingu í verðbréfamiðlun.

Valdimar Ármann
Valdimar Ármann
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Valdimar Ármann hóf störf innan Eignastýringar Arctica Finance um nýliðin áramót, en hann starfaði áður innan Markaðsviðskipta fyrirtækisins. Hlutverk Valdimars innan Eignastýringar verður undirbúningur að markaðssetningu sérhæfðra fjárfestingarsjóða til fagfjárfesta.

Áður en Valdimar hóf störf hjá Markaðsviðskiptum Arctica Finance í ársbyrjun 2020 hafði hann unnið hjá GAMMA, fyrst sem framkvæmdastjóri sjóða og síðar sem framkvæmdastjóri. Áður en Valdimar hóf störf hjá GAMMA starfaði hann um 7 ára skeið í London og New York, fyrst hjá ABN AMRO og síðar hjá Royal Bank of Scotland.

Valdimar er hagfræðingur frá Háskóla Íslands, með MSc gráðu í fjármálaverkfræði frá ICMA Centre, University of Reading í Bretlandi og löggildingu í verðbréfamiðlun.