Fasteignafélag í eigu Karls Steingrímssonar, oft kenndan við Pelsinn, og viðskiptafélaga hans vill byggja 28 íbúðir ofan á húsnæðið við Austurveg 1-3 á Selfossi. Í húsinu eru verslun Krónunnar og Kjarninn. Samkvæmt teikningum er gert ráð fyrir garði ofan á húsinu.

Fram kemur í Sunnlenska fréttablaðinu í dag að fyrirtækið heitir Kjarnafasteign og á það 82% hlut í fasteigninni.

Fyrirtækið hefur sent erindi þess efnis til bæjaryfirvalda á Selfossi. Í fréttablaðinu segir að aðrir eigendum í húsinu séu jákvæðir gagnvart framkvæmdinni þótt ekki sé komið skriflegt samkomulag við alla eigendur. Málið verður tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar í dag.