Breska viðskiptablaðið Financial Times segir frá því í dag að Tim Cockcroft, fyrrverandi forstjóri KBC Peel Hunt, hafi hætt hjá fyrirtækinu til að setja upp nýja deild hjá Kaupþingi banka í Bretlandi.

Cockcroft sagði nýlega starfi sínu lausu hjá KBC Peel Hunt, sem er breski armur belgíska fjárfestingabankans KBC Bank.

Ekki er vitað hvort að frétt Financial Times er rétt þar sem ekki náðist að staðfesta hana hjá Kaupþingi banka, og ekki er vitað hvernig deild Cockcroft hefur verið ráðinn til að þróa og setja á laggirnar.