Jernej Pikalo.
Jernej Pikalo.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Jernej Pikalo, stundakennari við Háskólann á Bifröst frá árinu 2006, var gerður að félags-og menntamálaráðherra Slóveníu í kjölfarið af kosningum þar um miðjan marsmánuð.  Nýja ríkisstjórnin er sú ellefta í landinu. Forsætisráðherra Slóveníu er Alenka Bratusek og er hún fyrsta konan sem leiðir ríkisstjórn landsins.

Fram kemur í tilkynningu frá Háskólanum á Bifröst að Jernej Pikalo hefur verið vinsæll kennari á Bifröst en hann hefur námskeið um hnattvæðingu í svokölluðu HHS námi, heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði við skólann.

Pikalo er 37 ára, með doktorsgráðu í félagsvísindum og er prófessor við félagsvísindadeild háskólans í Lubljana.  Hann hefur sérhæft sig í að rannsaka áhrif hnattvæðingarinnar og skrifað bækur og haldið fjölda fyrirlestra um rannsóknarsvið sitt.  Hann er einnig þekktur í Slóveníu fyrir að vera álitsgjafi í fjölmiðlum.