Um klukkan tvö í dag fóru fram ein stök viðskipti með bréf í Kaupþing [ KAUP ] fyrir um 1,2 milljarð króna.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis er um að ræða 1.750 þúsund hluti á genginu 690 sem er meðalgengi Kaupþings í dag.

Velta með hlutabréf í Kauphöllinni er nú um 4 milljarðar en þar af er helmingurinn, eða tæpir tveir milljarðar með bréf í Kaupþing.

Kaupþing hefur lækkað um 0,9% það sem af er degi og er gengi félagsins sem fyrr segir 690 á hvern hlut.