Rétt fyrir hádegi fóru fram ein stök viðskipti með bréf í Straumi Burðarási [ STRB ] fyrir 987 milljónir.

Um er að ræða 87,5 milljón hluti á genginu 11,28. Gengi bréfa í Straumi er nú 11,49 í Kauphöllinni.

Velta með bréf í Straumi er nú orðin 1.044 þúsund en félagið hefur lækkað um 1,5% í Kauphöllinni í morgun. Það er þó um þriðjungur af veltu í Kauphöllinni í dag en hún er um 3,1 milljarður.