Klara Íris Vigfúsdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra ÍMARK, samtaka markaðsfólks á Íslandi. Klara lauk BSc próf í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2005. Hún hefur áður starfað sem framkvæmdastjóri Express ferða og aðstoðarmaður forstjóra Iceland Express. Á árunum 2005-2011 starfaði Klara í markaðsdeild Landsbankans.

Í tilkynningu kemur fram að Ninja Ómarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri ÍMARK, ætlar að takast á við ný verkefni með fyrirtækinu Optional.is. Ninja mun þó vera félaginu innan handar fyrst um sinn.