Kristján Björgvinsson viðskiptafræðingur hefur tekið sæti í stjórn íslandssjóða. hann tekur þar með sæti Ársæls Valfells, lektors við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, sem víkur þar með endanlega úr stjórn sjóðanna.

Ársæll hafði vikið tímabundið úr stjórninni en ákvörðunin var gerð endanleg á aðalfundi íslandssjóða.

Gylfi Árnason vélaverkfræðingur hefur tekið sæti í varastjórn íslandssjóða í stað Kristjáns.