Króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung ársins 2006 þann 7. september, segir í tilkynningu til kauphallarinnar í Zagreb, en Actavis og bandaríska lyfjafyrirtækið Barr Pharmaceuticals berjast nú um Pliva.

Búist er við að Actavis muni birta formlegt kauptilboð í króatíska félagið í dag og að það verði hærra en óformlegt tilboð Actavis, sem nemur 723 kúnum á hlut. Tilboð Barr nemur 743 kúnum á hlut, en gengi hlutabréfa Pliva endaði í 780 kúnum hluturinn við lok markaðar í gær.