Gengisvísitalan var 181,5 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis, sem er hæsta markaðsgengi frá upphafi og hefur krónan því veikst um 3% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 6,2% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá gildi gengisvísitölunnar s.l. mánuð en miðað er við lokagengi á mörkuðum. Í síðustu viku veiktist krónan alla daga að föstudegi undanskildum en gengisvísitalan sló met á hverjum degi frá mánudegi til fimmtudags.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 180 stig sem er jafnframt hæsta opinbera gengi frá upphafi en var í gær 170,3 stig.

Krónan veiktist um 2,7% seinni part dags í gær eftir að hafa styrkst um morguninn.  Í morgun hélt hún áfram að veikjast strax við opnun gjaldeyrismarkaða en hæst varð gengisvísitalan tæp 183 stig og hafði krónan þá veikst um tæp 4%.

Krónan hefur nú veikst um 5,3% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 94,6 krónum, Evran í 139,2 krónum og Sterlingspundið í 175,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 87,6 krónum, japanskt jen í 0,90 krónum og danska krónan í 18,7 krónum.