Gengisvísitalan er nú 156 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,3% frá opnun í morgun en 2,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 155,5 stig en var í gær 159,2 stig.

Krónan styrktist um 1,7% á mörkuðum í gær en hefur nú styrkst um 5,5% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og opinbert gengi s.l. föstudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 77,3 krónum, Evran í 121,2 krónum og Sterlingspundið í 153,6 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,6 krónum, japanskt jen í 0,73 krónum og danska krónan í 16,3 krónum.