Gengisvísitalan var 166,1 stig við lok markaða í dag samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,5% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun og 0,8% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því á föstudag.

Krónan styrktist við opnun markaða í morgun en rétt fyrir kl. 14 í dag tók hún dýfu niður á við og hafði sem fyrr segir veikst um 1,5% við lokun gjaldeyrismarkaða.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans en lokagildi dagsins í dag miðast þó við markaðsgengi. Opinbert gengi var í morgun 162,7 stig en var fyrir helgi 164,8 stig.

Krónan veiktist um 2% síðastliðinn föstudag og um 3,4% í síðustu viku.

Krónan hefur nú veikst um 3,8% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 89,3 krónum, Evran í 126,3 krónum og Sterlingspundið í 15639 krónum .

Þá stendur svissneskur franki í 79 krónum, japanskt jen í 0,83 krónum og danska krónan í 16,9 krónum.