Í fyrra voru konur 18% framkvæmdastjóra og 22% stjórnarformanna starfandi fyrirtækja sem skrá eru í hlutafélagaskrá.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofu Íslands en í dag verður Kvennafrídagurinn endurvakinn þar sem 30 ár eru liðin frá frá fyrsta kvennafrídeginum árið 1975.

Hlutfall kvenkyns framkvæmdastjóra jókst úr rúmum 15% árið 1999 í tæp 18% árið 2004 og er sú fjölgun aðallega fyrir tilstuðlan nýrra fyrirtækja, segir í frétt Hagstofunnar.

Hlutfall kvenkyns stjórnarformanna hefur ekkert breyst frá árinu 1999. Í árslok 2004 sátu fjögur þúsund konur og 12 þúsund karlar í stjórnum starfandi fyrirtækja. Stjórnarstöður kvenna voru 4.300 og karla 15 þúsund.

Hlutfall kvenna miðað við karla er hæst í minnstu fyrirtækjunum og minnkar eftir því sem fyrirtækin stækka. Hlutfall kvenna er einnig hæst í yngsta aldurshópi framkvæmdastjóra og stjórnarformanna. Konur starfa í ríkari mæli í verslun og þjónustu en karlar.