Landsbankinn er nú að ljúka endurútreikningi á erlendum íbúðalánum. Þetta á við þau lán sem falla undir lög um vexti og verðtryggingu frá því í desember á síðasta ári.

Tæplega 2.800 lán koma til endurútreiknings hjá Landsbankanum. Lækkun höfuðstóls erlendra lána verður aldrei minni en 25% en meðallækkun höfuðstóls er 41%. Dæmi eru um, þegar greitt hefur verið af lánum samkvæmt upphaflegum skilmálum, að lækkun höfuðstóls geti orðið talsvert meiri eða allt að 70%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum.

„Viðskiptavinir Landsbankans með erlend lán, sem fá lán sín ekki endurútreiknuð samkvæmt lögum eða skilgreiningu bankans, geta sótt um endurútreikning á grundvelli greiðsluerfiðleika og er þeim þannig tryggður sambærilegur ávinningur og öðrum af lægri eftirstöðvum láns.

85% lána komin í Einkabankann

Landsbankinn birti endurútreikning tæplega 1500 erlendra lána í Einkabanka viðskiptavina 22. desember en nú hafa um 85% allra lána sem til endurútreiknings koma verið birt í Einkabankanum.

Endurútreikningurinn er framkvæmdur miðað við lægstu verðtryggða og óverðtryggða vexti sem Seðlabanki Íslands ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum nýrra almennra útlána lánastofnana. Sú niðurstaða sem er lántaka hagstæðari myndar nýjan höfuðstól lánsins en til samanburðar eru báðar leiðir birtar í Einkabankanum.

Hægt að staðfesta endurútreikning nú þegar

Nú þegar gefst viðskiptavinum kostur á að staðfesta endurútreikninginn og velja um nýtt verðtryggt eða óverðtryggt lán í íslenskum krónum. Fylla þarf út viðauka við eldri lán og er hann aðgengilegur í Einkabanka viðskiptavinar en viðaukanum þarf að skila í næsta útibú. Einnig geta lántakar óskað eftir því að vera áfram með lán í erlendri mynt en óvissa er þó um fyrirkomulag á slíkum lánum, m.a. vegna þeirra gjaldeyrishafta sem í gildi eru.

Breyting á greiðslubyrði

Breyting úr gengistryggðu fasteignaláni í  lán í íslenskum krónum getur haft í för með sér breytingar á greiðslubyrði þar sem vextir íslenskra lána eru almennt hærri en lána í erlendri mynt.  Viðskiptavinum Landsbankans munu því standa til boða lausnir til að lækka greiðslubyrði eftir að endurútreikningur hefur farið fram.  Meðal annars með breytingu lána í jafngreiðslulán og/eða með lengingu lánstíma.“