Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 1,07% í dag og endaði í 1748,53 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 7,01% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 0,29% í viðskiptum sem hljóða upp á 88 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 70,2 krónum á hlut. Gengi bréfa Eimskips hækkaði þá einnig, eða um 0,93% í 63 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 271 krónu.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair, eða um 2,24% í viðskiptum sem hljóða upp á 593 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 30,60 krónur. Gengi bréfa Marel lækkaði þá einnig, eða um 1,18% í viðskiptum sem hljóða upp á 208 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 251 króna.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 1,5 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var rúmlega 4,8 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1% í dag í 1,5 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 4,4 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 1,4 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 3 milljarða króna viðskiptum.