Lagarfoss kemur til Reykjavíkurhafnar klukkan 15.30 á morgun. Skipið, sem er smíðað í Kína, kemur hingað til lands með 11 manna íslenskri áhöfn en skipstjóri er Guðmundur Haraldsson.

Burðargeta skipsins er 12.200 tonn, það er 140,7 metrar á lengd og 23,2 metrar á breidd.

"Tveir 45 tonna gámakranar eru á skipinu sem hentar vel á markaðssvæði Eimskips á Norður-Atlantshafi,"segir í tilkynningu. "Skipið er búið öflugum skut- og bógskrúfum og er sérstaklega styrkt fyrir íssiglingar, með ísklassa 1A, auk þess að vera með tengla fyrir 230 frystigáma.

Lagarfoss mun leysa Selfoss af á gulu leiðinni sem siglir frá Grundartanga, Reykjavík og Vestmannaeyjum til Þórshafnar í Færeyjum, Immingham í Bretlandi, Hamborgar og Rotterdam. Með tilkomu nýja skipsins opnast möguleiki á að bæta við viðkomu í Vlissingen í Hollandi, meðal annars til að þjóna betur Norðuráli á Grundartanga, einum af stærstu viðskiptavinum félagsins.
Lagarfoss er sjöunda skipið sem ber þetta nafn hjá félaginu. Lagarfoss I var þriðja skipið sem Eimskip eignaðist og var það í eigu félagsins frá 1917 til 1949."

Í fréttatilkynningu segir Gylfi Sigfússon forstjóri:

„Þessi fjárfesting undirstrikar þá áherslu sem Eimskip leggur á flutninga á milli Íslands, Færeyja, Bretlands og norðanverðar Evrópu. Nýja skipið er sérhæft og vel útbúið fyrir aðstæður á Norður-Atlantshafi og mun styrkja þjónustu við viðskiptavini okkar. Lagarfoss er stærra og hraðskreiðara skip en Selfoss og mun því auka áreiðanleika þjónustunnar, auk þess sem nýja skipið er hagkvæmara í rekstri og umhverfisvænna. Gula leiðin er viðkvæm fyrir töfum vegna farmsins sem þar er fluttur, en við flytjum í viku hverri ferskan fisk til afhendingar á fiskmörkuðum, auk þess sem aukning er á áframflutningi á ferskum fiski með bílum í Evrópu og með flugi til Bandaríkjanna og Kína.

Þetta er mjög kærkomin og jákvæð þróun fyrir Eimskip á hundrað ára afmælisári félagsins. Viðræður um afhendingu seinna skipsins eru nú í gangi og niðurstöðu að vænta á þriðja ársfjórðungi, en ljóst er að afhendingin mun ekki verða fyrr en á árinu 2015."