Landic Property hf. hefur fest kaup á hlut FL Group í alþjóðlegum fasteignasjóðum.

Sjóðirnir eru Prestbury, Lxb, Catalyst Capital, Terra Firma og WCC Europe.

Kaupverðið er 20,6 milljarðar króna og voru kaupin fjármögnuð með víkjandi láni með breytirétti sem kemur til greiðslu eftir fimm ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landic Property hf.