Nú hefur tekið gildi samningur Samtaka atvinnulífsins (SA) og Alþýðusambands Íslands (ASÍ) um greiðslur í Endurhæfingarsjóð.

Samkomulagið gerir ráð fyrir að frá 1. júní 2008 greiði launagreiðendur sérstakt 0,13% endurhæfingargjald til sjóðsins.

Gjaldið leggst á sama gjaldstofn og iðgjald til lífeyrissjóða. Endurhæfingarsjóður hefur óskað eftir því að lífeyrissjóðirnir taki að sér innheimtu gjaldsins.

Þetta kemur fram á vef SA en HÉR má sjá samninginn í heild.