Laun voru að meðaltali um 0,7% hærri á fjórða ársfjórðungi síðasta árs en á fjórðungnum þar á undan. Þetta kemur fram í frétt á veg Hagstofu Íslands en launavísitala 4. ársfjórðungs 2010 var birt í dag. Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 0,8% en laun opinberra starfsmanna um 0,5%.

Ef litið er til tólf mánaða tímabils hækkuðu laun um 5% á milli ára, þar af um 6,4% á almennum markaði en um 1,9% hjá opinberum starfsmönnum.

„Frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun sérfræðinga mest eða um 1,1% en laun iðnaðarmanna og verkafólks hækkuðu að meðaltali um 0,6% á sama tímabili. Frá fyrra ári hækkuðu laun sérfræðinga einnig mest eða um 7,3% en laun iðnaðarmanna hækkuðu um 5,1% á sama tímabili.

Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun launa í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum 1,3% en á sama tíma lækkuðu laun í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð  um 0,7%. Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun mest í samgöngum og flutningum um 8,1% en minnst í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð um 3,4%,“ segir á vef Hagstofunnar.