Sjálfstæðismenn í Reykjavík velja sér oddvita í nýstárlegu prófkjöri í dag milli 10 og 18. Hægt að kjósa í Valhöll og í Grafarvogi, Árbæ og Breiðholti. Valið stendur á milli Áslaugar Maríu Friðriksdóttur, Eyþór Arnalds, Kjartan Magnússonar, Viðars Guðjohnsen og Vilhjálms Bjarnasonar.

Aldrei áður hafa sjálfstæðismenn í Reykjavík haft möguleika á því að velja oddvita framboðslista flokksins í sérstakri kosningu og er því ljóst að leiðtogaprófkjörið sem fram fer í dag markar ákveðin tímamót í sögu flokksins.

Í dag milli klukkan 10 til 18 munu sjálfstæðismenn velja á milli fimm frambjóðenda sem allir sækjast eftir því að leiða framboðslista Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. Jafnframt eru stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins hvattir til að taka þátt og móta þannig framtíðina segir í fréttatilkynningu frá flokknum.

Leiðtogaprófkjörið er opið öllum flokksbundnum sjálfstæðismönnum 15 ára og eldri. Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins sem ganga í flokkinn á kjördegi skulu þó hafa náð 18 ára aldri 26. maí næstkomandi.

Borginni er skipt upp í eftirfarandi kjörhverfi:

  • 1. Kjörhverfi

Vestur‐ og Miðbæjarhverfi, Nes‐ og Melahverfi og Miðbæjar‐ og Norðurmýrarhverfi. Öll byggðin vestan Rauðarárstígs að Miklubraut.

Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.

  • 2. Kjörhverfi

Hlíða‐ og Holtahverfi, Laugarnes‐ og Túnahverfi og Langholtshverfi. Öll byggð er afmarkast af 1. kjörhverfi í vestur og suður. Öll byggð vestan Kringlumýrarbrautar að Suðurlandsbraut og öll byggð norðan Suðurlandsbrautar.

Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.

  • 3. Kjörhverfi

Háaleitishverfi, Smáíbúða, Bústaða‐ og Fossvogshverfi. Hverfið afmarkast af Kringlumýrarbraut í vestur, Suðurlandsbraut í norður og Reykjanesbraut í austur.

Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.

  • 4. Kjörhverfi

Árbæjar‐ og Seláshverfi, Ártúns‐ og Norðlingaholt.

Kjörstaður: Félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins, Hraunbær 102b (við hliðina á Skalla).

  • 5. Kjörhverfi

Hóla‐ og Fellahverfi, Bakka‐ og Stekkjahverfi, Skóga‐ og Seljahverfi.

Kjörstaður: Félagsheimili Sjálfstæðisfélaganna Mjódd, Álfabakka 14a.

  • 6. Kjörhverfi

Grafarvogur, Bryggjuhverfi, Grafarholt, Úlfarsárdalur og Kjalarnes.

Kjörstaður: Hverafold 1-3, 2. hæð.