Rétt tæplega 11% fleiri leigusamningum var þinglýst í janúar en í sama mánuði árið á undan. Samningarinir eru hins vegar 75% fleiri í janúar en þeir voru í desember. Þetta kemur fram í tölum Þjóðskrár Íslands.

Langflestir samningarnir, eða 703 af 1068, voru gerðir í Reykjavík. Næststærsta svæðið er Suðurnes. Þar voru 134 samningar gerðir og fjölgar þeim um 31% frá janúar 2013.