Velta með íbúðabréf á skuldabréfamarkaðnum nam sex milljónum króna í dag samkvæmt upplýsingum frá GAM Management. Heildarvelta skuldabréfa í Kauphöllinni var 4,28 milljarðar króna, þar af með ríkisbréf fyrir 4,22 milljarða.

Skuldabréfavisitala Gamma, sem mælir ávöxtun skuldabréfa, hækkaði um 0,02% í dag. Vísitala verðtryggðra skuldabréfa, sem eru íbúðabréfin, hækkaði um 0,1%. Vísitala óverðtryggðra skuldabréfa, sem eru ríkisbréf, lækkaði hins vegar um 0,2% í dag.