Rúmlega helmingur landsmanna hefur ekkert kynnt sér frumvarp Stjórnlagaráðs til stjórnarskrár og einungis 2,2% hafa kynnt sér frumvarpið mjög vel.

Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR þar sem spurt var um Stjórnlagaráðið.

Í könnuninni kom fram að rúmlega helmingur þeirra sem tók afstöðu hafði ekkert kynnt sér frumvarp Stjórnlagaráðs til stjórnarskrár eða 53,1%. Sem fyrr segir höfðu einungis 2,2% þeirra sem tóku afstöðu sögðust hafa kynnt sér frumvarp Stjórnlagarlagaráðs mjög vel og 11,3% sögðust hafa kynnt sér það nokkuð vel.

Samkvæmt könnuninni var nokkur munur á því hvort fólk hefði kynnt sér frumvarp Stjórnlagaráðs m.a. eftir kyni, aldri og stuðningi við ríkisstjórnina. Fleiri karlar höfðu til að mynda kynnt sér frumvarpið heldur en konur en 58,2% karla sögðust hafa kynnt sér það borið saman við 35,8% kvenna. Þá jókst einnig fjöldi þeirra sem hafði kynnt sér frumvarpið með hækkandi aldri. Einnig höfðu 55,8% þeirra sem sögðust styðja ríkisstjórnina kynnt sér frumvarpið borið saman við 48,4% þeirra sem studdu hana ekki.

Sjá könnunina í heild sinni.