Það var heldur tíðindalítið skömmu eftir opnun á hlutabréfamörkuðum í Evrópu en tekið skal fram að lokað er í kauphöllinnni í Lundúnum í dag og lokað var á mörkuðum í Asíu í nótt. CAC-vísitalan í París stóð í stað og sömu sögu vara að segja af Euronext 100. Dax-vísitalan í Þýskalandi hækkaði nokkuð í byrjun viðskipta eða um 0,7% og hlutabréfavísitlan í Sviss hækkaði sömuleiðis um 0,7%. Fyrirfram var gert ráð fyrir að verð á hlutabréfum myndi gefa eftir á mörkðum í dag.