Samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins var þinglýst 7,4% fleiri kaupsamningum í maí 2006 en í maí 2005, að sögn greiningardeildar Kaupþings banka.

?Þetta er merkilegt í ljósi þess að þensla á fasteignamarkaði var í hámarki á þessum tíma. Þinglýst var 26,1 fleiri kaupsamningum í maí en apríl en óvenju margir frídagar voru í apríl," segir greiningardeildin.