Hlutabréf lækkuðu í Asíu í dag, annan daginn í röð, en það voru helst fjármála- og tæknifyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

MSCI Kyrrahafsvísitalan lækkaði um 3,2% í dag og nálgast nú á ný fimm ára lágmark líkt og gerðist í lok október.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 2,3%, í Hong Hong lækkaði Hang Seng vísitalan um 4,5% og í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 3%.

Í Kína lækkaði CSI 300 vísitalan um 2,5% og í Ástralíu lækkaði S&P 200 vísitalan um 3,6%.