Hlutabréf lækkuðu í Asíu í dag, annan daginn í röð.

MSCI Kyrrahafs vísitalan lækkaði um 1,1% og hefur nú lækkað um 9,6% á árinu að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

Nikkei vísitalan í Japan lækkaði um 1,1%, S&P/ASX í Ástralíu lækkaði um 0,9%, í Singapúr lækkuðu hlutabréf um 1,1% og í Hong Kong lækkuðu bréf um 1,4%.