Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnafyrði hefur boðið sig fram til forystu fyrir Samfylkinguna í Suðvesturkjördæmi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lúðvík.

„Við þær aðstæður sem nú eru ríkjandi í samfélaginu er brýnt að sameina krafta þjóðarinnar til endurreisnar í anda jafnaðar- og félagshyggju.  Verkefnin sem blasa við verða bæði erfið og krefjandi og því mikilvægara en nokkru sinni fyrr að það skapist fullt traust á milli þjóðar og þings,“ segir Lúðvík í tilkynningunni.   „Samfylkingin mun verða leiðandi afl í þeirri vinnu sem framundan er við að byggja upp og treysta að nýju undirstöður atvinnulífs, efnhagsmála og heimilanna í landinu og endurheimta orðspor landsins í samfélagi þjóðanna. Fjölbreytt störf og forysta á sviði sveitarstjórnarmála í áratugi er bæði  mikilvæg og dýrmæt reynsla sem ég tel að muni nýtast vel við þau störf sem nýtt Alþingi þarf að takast á við.“   Lúðvík segist vera reiðbúinn að leggja sitt að mörkum í þeim efnum og hefur því ákveðið að gefa kost á sér til að leiða framboðslista Samfylkingarinnar.