Katrín M. Guðjónsdóttir, markaðsstjóri N1, hefur komist að samkomulagi um starfslok sín hjá fyrirtækinu. Katrín hóf störf hjá N1 árið 2008 og varð staðgengill Gunnlaugs Þráinssonar, markaðsstjóra N1. Þegar Gunnlaugur hætti fyrir tæpum þremur árum tók hún við starfinu.

„Það eru engar beinar ástæður fyrir þessu. Það er nýr maður í brúnni. Við erum með mismunandi áherslur og gerðum  samkomulag um að ég myndi hætta. Við höfum starfað mjög vel saman. Þetta var ekkert stríð heldur ósköp venjulegur dans,“ segir hún í samtali við vb.is og leggur áherslu á að starfslokin séu gerð í góðu. „Ég er þakklát fyrir þann góða skóla sem tíminn hjá N1 hefur verið, en nú er jafnframt góður tímapunktur til að skoða ný verkefni,“ segir hún.