Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX á Íslandi, sagði að skráning Haga væri mark um endurreisn íslensk efnahagslífs við skráningu félagsins á markað. Páll sagði að um tímamótaskráningu væri að ræða, sú fyrsta eftir hrun en síðasta skráning í Kauphöllina var í mars 2008.

„Skráningin markar endurreisn hlutabréfaviðskipta hér. Þetta er ánægjulegra fyrir fleiri en Haga,“ sagði Páll.