Forstjóri Levi Strauss, Paul Mason, hefur samþykkt að taka við stjórn bresku matvöruverslunarkeðjunnar Somerfield, segir í frétt breska dagblaðsins The Times.

Áður en Mason tók við sem forstjóri Levi Strauss var hann við stjórnvölinn hjá bresku matvöruverslunarkeðjunni Asda og verslunarkeðjunni Matalan.

Athafnamaðurinn Robert Tchenguiz, ásamt breska fjárfestingsjóðnum Apax, breska bankanum Barclays og Kaupþingi banka, keypti Somerfiled í fyrra fyrir rúmlega milljarð punda. Baugur varð að hætta við þátttöku í kaupunum vegna Baugsmálsins.