Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,34% í dag og endaði í 1.310,95 stigum. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 2,89%.

Gengi nánast alla bréfa á markaði lækkuðu í dag en mest lækkaði gengi bréfa í Nýherja um 4,7% og gengi bréfa í HB Granda um 3,1%. Þetta er í takt við þær lækkanir sem við greindum frá fyrr í dag .

Gengi bréfa í Össuri hækkuðu um 1,38% og gengi bréfa Marels um 0,97%. Öll önnur bréf á markaði lækkuðu eða stóðu í stað.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 835,6 milljónum króna.