Sala á mat og áfengi var heldur minni í ágúst síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Skýringa má leita í tímasetningu verslunarmannahelgar á milli ára. Í fyrra var stærsti verslunardagur fyrir verslunarmannahelgina í ágúst en í ár fór megnið af helgarinnkaupunum fram í júlí. Þessu greinir Rannsóknasetur verslunarinnar frá.

Hinsvegar var sumarið gott fyrir byggingarvöruverslanir en töluverður vöxtur var sumarmánuðina þrjá; júní, júlí og ágúst miðað við sama tímabil í fyrra. Þessi vöxtur endurspeglar efalaust grósku í byggingaframkvæmdum ásamt viðhaldi og framkvæmdum við endurnýjun húsnæðis. Velta í byggingavöruverslunum síðustu þriggja mánaða var 10,8% meiri en á sama tímabili í fyrra að raunvirði.

Verðlag á sérvöru er almennt lægra en var fyrir ári síðan. Verð á dagvöru er hins vegar 3,5% hærra en fyrir ári síðan. Í því sambandi er vert að hafa í huga hækkun á lægra þrepi VSK á matvæli um síðustu áramót og lækkun vörugjalda á raftæki og sumar byggingavörur.