Höfuðstöðvar News Corporation.
Höfuðstöðvar News Corporation.
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)
Murdoch fjölskyldan hefur tapað einum milljarði dollara á gengisfalli hlutabréfa sinna í News Corp síðan upp komst um hleranahneyksli News of the World. Er það jafnvirði rúmlega 117 milljarða íslenskra króna. Á mánudag lækkaði hlutabréfaverð News Corp um 4,3% í 14,97 dollara í New York. Frá 4.júlí hafa hlutabréfin fallið um 17,4%, eða um 8,3 milljaraða dollara af því er fram kemur á vef Financial Times.

Eins og áður hefur komið fram lokaði News of the World fyrir fullt og all í kjölfar hneykslisins eftir 168 ára samfellda útgáfu. Á föstudag höfðu hlutabréf News Corp sem skráð voru í kauphöllna í Sydney lækkaðum 12% á einni viku.