Sjónvarpsstöðin NBC hefur kynnt nýja dagskrá sína þar sem sjónvarpsstöðin leggur mikla áherslu á vinsæla gamanþætti. Með þessu er búist við að áhorf muni aukast en stöðin er nú í fjórða sæti yfir áhorfstölur.

Þetta er af illri nausyn gert þar sem sjónvarpsstöðin skilaði 31 milljón dollara tapi á fyrsta ársfjórðungi eftir að hafa skilað 14 milljónum dollara árshagnaði í fyrra.

Sjö nýir gamanþættir hefja göngu sína.