Hagnaður á rekstri Nexus afþreyingar ehf., sem rekur verslunina Nexus við Hverfisgötu, nam tæpum 1,2 milljónum króna árið 2010, samanborið við 3,2 milljóna króna hagnað árið á undan. Rekstrartekjur námu 135,3 milljónum króna árið 2010 en voru 149,4 milljónir árið á undan.

Eignir námu í árslok 2010 40,2 milljónum króna, og þar vógu vörubirgðir og viðskiptakröfur þyngst. Eigið fé nam 21,8 milljónum króna og jókst á árinu sem nam hagnaði. Skuldir námu 18,5 milljónum króna. Framkvæmdastjóri Nexus afþreyingar er Gísli Einarsson.