Fjárfestingarfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, Novator, var í hópi þeirra sem hlutskarpastir urðu í útboði á þriðju-kynslóðar farsímaleyfum (3G) í Kanada.

Samkvæmt Ásgeiri Friðgeirssyni, upplýsingafulltrúa Novator, þá er félagið nú að meta stöðuna og skoða hvernig leyfið verður notað.

Ástandið nú krefjist þess að ákvarðanir séu vel ígrundaðar.

Novator hefur átt í samstarfi við kanadíska farsímafyrirtækið Globalive og egypska fjarskiptaveldið Orascom í gegnum fjárfestingarfélagið Weather Investments sem er í eigu egypska kaupsýslumannsins Naguib Sawiris.