Á aðalfundi Auðar Capital hf. miðvikudaginn 11. júní sl. var ný stjórn félagsins kjörin.

Stjórnina skipa Halla Tómasdóttir, Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, Kristín Jóhannesdóttir, Hildur Petersen og David Adams.

Í varastjórn voru kjörin Hallgrímur Snorrason, Gunnar Þór Pétursson, Guðrún Pétursdóttir, Ingunn Wernersdóttir og  Ragnheiður Jónsdóttir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Auði Capital.