Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman skýrslu um nýja umgjörð um veitingu fasteignalána til neytenda. Skýrslan er til upplýsingar fyrir neytendur, lánveitendur, stjórnmálamenn og aðra þá sem málið varðar.

Samkvæmt ráðuneytinu er markmið skýrslunnar að koma umræðu af stað um bestu framkvæmd við veitingu fasteignalána sem nýtast mun við gerð nýrrar innlendrar umgjarðar þar um. Nefnd, sem fjármála- og efnahagsráðherra skipaði í byrjun árs, hyggst skila frumvarpsdrögum til ráðherra fyrir næstu áramót með það að markmiði að frumvarp verði lagt fram á vorþingi 2015.

Stefnt er að því að sett verði ný heildarlög um veitingu fasteignaveðlána til neytenda og að felld verði út ákvæði úr lögum um neytendalán um sama efni.