Birna Guðmundsdóttir
Birna Guðmundsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Birna G. Guðmundsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga en hún starfaði áður sjálfstætt við kynningar- og markaðsmál.

Birna er upplýsingafræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA frá Copenhagen Business School í Danmörku. Áður starfaði Birna sem markaðsstjóri Iceland Express en hún starfaði áður sem aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Metroxpress í Danmörku og verkefnastjóri hjá Icelandair.