Lárus M.K. Ólafsson hefur hafið störf sem lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu. Hann hefur starfað undanfarin ár sem lögfræðingur Orkustofnunar og jafnframt staðgengill Orkumálastjóra. Einnig hefur hann starfað sem lögfræðingur hjá Iðnaðarráðuneytinu.