Hjörtur Freyr Vigfússon
Hjörtur Freyr Vigfússon
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Hjörtur Freyr Vigfússon hefur tekið við starfi markaðsstjóra hjá Securitas. Hjörtur var áður framkvæmdastjóri Vals og þar áður framkvæmdastjóri Golfklúbbs Odds og Oddfellowa.

Hann hefur meðal annars verið markaðs- og sölustjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Betware. Hjörtur er lærður íþóttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands með B.Sc. í stjórnun frá Coastal Carolina University og Master of Business Administration frá Webster University.