Birna Hlín Káradóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur hjá Fossum mörkuðum hf. en hún mun hefja störf í janúar n.k.

Birna Hlín útskrifaðist með kandídatspróf í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2006. Birna er með próf í verðbréfaviðskiptum auk þess að hafa réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi

Frá árinu 2009 hefur hún gengt starfi yfirlögfræðings, fyrst hjá Straumi-Burðarás svo Straumi fjárfestingarbanka og nú síðast hjá sameinuðum banka MP og Straums. Bina var auk þess í framkvæmdastjórn Straums fjárfestingarbanka. Birnga starfaði einnig á lögfræðisviði Straums-Burðaráss og á einkabankasviði Landsbanka Íslands í skattaráðgjöf.

Fossar markaðir hófu starfsemi í apríl 2015 og þar starfa átta starfsmenn.