Norðurheimskautsbaugshlaup TVG-Zimsen var haldið í Grímsey um helgina. Þetta er í fjórða skipti sem efnt er til þessa nyrsta almenningshlaups á Íslandi.
Hlaupaleiðin er hringur í eynni og er farið norður yfir heimskautsbaug og út á nyrsta tanga Íslands. Tvær vegalengdir voru í boði, annars vegar 12 km sem er einn hringur og hins vegar 24 km sem eru tveir hringur um eyjuna. Alls tóku þrjátíu hlauparar þátt.
Sigurvegari í karlaflokki í 24 km var Þorbergur Ingi Jónsson. Í kvennaflokki sigraði Anna Berglind Pálmadóttir í 24 km. hlaupinu. Í 12 km hlaupi karla sigraði Ránar Jónsson og í kvennaflokki Rannveig Oddsdóttir.