Vísitala framleiðsluverðs í mars 2007 er 121,9 stig og er óbreytt frá fyrri mánuði, segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir er 125,8 stig og lækkar um 0,3% (vísitöluáhrif -0,1%) og vísitala fyrir stóriðju er 152,4 stig, hækkar um 0,4% (0,1%). Vísitalan fyrir matvæli lækkar um 0,4% (-0,1%) en vísitala fyrir annan iðnað hækkar um 0,5% (0,1%). Athygli er vakin á því að verð sem notuð eru við útreikning vísitölunnar eru án virðisaukaskatts og vörugjalda.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkar um 0,6% (0,2%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkar hún um 0,3% (-0,2%).

Frá mars 2006 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 9,5%, sjávarafurðir hafa hækkað um 14,4%, afurðir stóriðju um 12,2% og matvæli um 5,8%.