Heimsmarkaðsverð á olíu í framvirkum samningum til afgreiðslu í október er nú 74,21 dollarar á markaði í London en 73,58 dollara í New York. Eru þetta talsvert hærri verð en í septembersamningum, en nýtt mánaðatímabil hófst í dag.

Oft lækkar framvirka verðið í upphafi nýs tímabils eins og virðist vera að gerast á hrávörumarkaðnum í London þessa stundina.